Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 (útgerðarfélag I).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [X] f.h. [Y ehf.], dags. 20. mars 2019, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 til bátsins [B].

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 til bátsins [B] og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 1. febrúar 2019, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sama dag, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Flateyri í Ísafjarðarbæ en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 685/2018, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 18. febrúar 2019. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 1.205 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 684/2018, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2018/2019, sem skiptust á byggðarlögin Hnífsdal, 222 þorskígildistonn, Þingeyri, 281 þorskígildistonn, Flateyri, 300 þorskígildistonn, Suðureyri, 192 þorskígildistonn og Ísafjörð, 210 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi ráðuneytisins, dags. 23. nóvember 2018.

Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn [B] með umsókn til Fiskistofu, dags. 29. janúar 2018, en umsókninni fylgdi samningur við fiskvinnslu, dags. sama dag.

Hinn 7. mars 2019 tilkynnti Fiskistofa útgerðum á Flateyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlaginu. Kæranda, [Y ehf.] var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins [B]. Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að báturinn uppfyllti ekki skilyrði b-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 685/2018, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 um að hafa verið skráður í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2018.

Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.

 

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 20. mars 2019, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði [X] f.h. [Y ehf.] til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 til bátsins [B].

Í stjórnsýslukærunni kemur fram m.a. að þess sé krafist að ráðuneytið felli úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að báturinn [B] fái ekki úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við viðmiðunarreglur.

Með bréfi, dags. 28. mars 2019, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Í umsögn Fiskistofu, dags. 8. apríl 2019, segir m.a. að Fiskistofa telji að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun stofnunarinnar. Um rökstuðning vísist til þess sem komi fram í hinni kærðu ákvörðun. Einnig sé vísað til þess að vinnslusamningur sá sem hafi fylgt umsókn kæranda hafi runnið út 31. ágúst 2018 og hafi kærandi því ekki framvísað samningi við vinnsluaðila í byggðarlaginu skv. 6. gr. reglugerðar nr. 685/2018. Þá kemur þar fram að með umsókn kæranda hafi verið óskað eftir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 en Fiskistofa hafi litið svo á að um augljósa villu væri að ræða og tekið umsóknina til meðferðar sem umsókn um byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2018/2019.

Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) Umsókn kæranda um byggðakvóta, dags. 29. janúar 2018. 2) Samningur um vinnslu afla vegna byggðakvóta, dags. sama dag. 3) Breytingasaga bátsins [B]. 4) Ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda um byggðakvóta.

Með bréfi, dags. 29. apríl 2019, sendi ráðuneytið kæranda, [Y ehf.], ljósrit af umsögn Fiskistofu, dags. 8. apríl 2019 og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við umsögnina. Frestur til þess var veittur til og með 14. maí 2019.

Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda vegna framangreinds bréfs.

 

 

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 685/2018, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru:  a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2018 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2018. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa.

Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 685/2018.

Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Ísafjarðarbæ, m.a. á Flateyri fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (I) nr. 87/2019, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.

Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, reglugerð nr. 685/2018 og auglýsingu (I) nr. 87/2019.

[B] var skráður á Tálknafirði 1. júlí 2018 og uppfyllti því ekki skilyrði stafliðar b 1. gr. reglugerðar nr. 685/2018 fyrir úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2018/2019. Þegar af þeirri ástæðu eru ekki skilyrði fyrir að fallast á kröfur kæranda í máli þessu.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að úthluta af byggðakvóta Flateyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 til bátsins [B] en samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda, [Y ehf.], um úthlutun byggðakvóta til bátsins [B].

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

 

 

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. mars 2019, um að hafna umsókn kæranda, [Y ehf.], um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 til bátsins [B].


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum